Við heitum Sölvi Már og Tristan

Velkominn á síðuna okkar



Ég er fæddist þann 7. ágúst 2002, alveg á réttum tíma samkvæmt mömmu minni og er þar af leiðandi alveg einstaklega hlýðinn stór strákur. Ég var nú óttarlegt písl 2660 gr og 49 cm. Ég var rauðhærður strax frá upphafi og hef sem betur fer haldið þeim lit. Ég er að verða stóri bróðir í sumar og farinn að undirbúa mig undir þetta stóra hlutverk mitt. Þann 29. janúar fóru mamma og pabbi í sónar til að skoða systkinið mitt og ákváðu að fá að vita kynið sem er í mallanum á mömmu og kom í ljós að ég á von á litlum bróður.
Þann 21. júní 2007 fæddist síðan litli bróðir, Tristan. Hann lét aðeins bíða eftir sér en við fæðingu mælist hann 16 merkur og 54 cm, sem sagt ekki sama píslið og stóri bróðir hans. Hann virðist einnig vera rauðhærður en samt ekki eins og Sölvi en það er vonandi að hann muni halda rauða litnum. Mamma vill meina að Sölvi sé með rauða hárið úr föðurfjölskyldunni sinni en Tristan sé með rauða hárið frá mömmu. Það er vissara að deila þessu jafnt á milli okkar.

Mamma okkar heitir Erla Björk og sér um félagsstarfið á Droplaugastað. Pabbi okkar heitir Þórir og er verkfræðingur hjá símanum.

Við ákváðum að læsa síðunni og hvetjum alla vini og vandamenn að biðja um lykilorðið. Ekki hika við það





Hvetjum alla til að skrifa í gestabókina. Okkur finnst svo gaman að vita hverjir eru að kíkja á okkur.